Nóvember- í fréttum er þetta helst!

Það er ýmislegt sem hægt að gera þó að sumarið hafi kvatt okkur frekar snögglega og haustlitir og kuldi bönkuðu uppá. Haustin eru tilvalin tími til að gróðursetja meðan jörð er enn frostlaus, mikilvægt að dreifa verkum tengt skógrækt svo ekki þurfi bara að puða yfir sumartímann.

Girðingavinna í Skagás gekk gríðarlega vel og er búið að yfirfara og laga hana allan hringinn um reitinn sem ætlaður er Skógræktarfélaginu. Fengum virkilega góðan hóp af fólki þegar kallað var eftir aðstoð og fengum blíðu veður í verkið einnig.

Stjórn félagsins hefur heldur betur verið að kasta boltum sín á milli, sótt um styrki til uppbyggingar í Skagás á tveim stöðum, vinnsla á heimasíða hefur gengið hægt en örugglega svo eitthvað sé nefnt. Við getum með sanni sagt að hugmyndir og hugsjón okkar fyrir Skagás er metnaðarfull.

Framundan er að hitta á stjórnendur grunn- og leikskóla og óska eftir þeirra sýn og hugmyndum með þróun á svæðinu með tilliti til verkefnisins Gullin í grenndinni. Hönnun á skilti vegna gönguleiða með helstu upplýsingum er í vinnslu og einungis fínpússningar eftir varðandi þá vinnu. Vangaveltur hjá stjórn með að fínpússa gönguleiðirnar lítillega áður en að loka útgáfan fær að líta dagsins ljós.

Við munum að sjálfsögðu leyfa félögum okkar fylgjast með gangi mála og hvernig málin þróast. Aðalfundur á alltaf lokasvarið í framkvæmdum varðandi félagið og það sem er framkvæmt á svæðinu í Skagás.