
Gullin í grenndinni er samstarfsverkefni leik-og grunnskóla. Verkefnið hóf göngu sína milli leikskólans Krakkaborgar og Flóaskóla í janúar 2019 og fékk styrk frá sprotasjóði vorið 2019.
Samstarfsaðilar eru skógræktarfélag Villingaholtshrepps, Skógræktarfélag Árnesinga og Flóahreppur. Tveir elstu árgangar leikskólans og tveir yngstu árgangar grunnskólans hittast einu sinni í mánuði í skóginum Skagás.
Markmið verkefnisins er að nemendur stuðli að aukinni kolefnisbindingu úr andrúmslofti með því að efla skógrækt í skóginum Skagás og hefjast handa við að byggja upp skóg við Flóaskóla. Með þátttöku nemenda í uppbyggingu og eflingu skógræktar er markmið einnig að auka fjölbreytni í skólastarfi og stuðla að því að hver einstaklingur fái að njóta sín í þeim verkefnum sem þeir taka þátt í. Ásamt því að skólarnir og íbúar Flóahrepps nýti sér skóginn til útivistar, náttúruupplifana og viðburða í sveitarfélaginu.
Börin hafa unnið fjölbreytt verkefni og má þar nefna gróðursetningu trjáa, grisjun í skógi, fræðslu um bindingu kolefnis úr andrúmslofti og hlutverki skógar í þeim tilgangi.
Áætlaður afrakstur verkefnisins er:
- að börnin öðlist skilning á mikilvægi skógræktar við kolefnisbindingu úr andrúmslofti.
- að börnin hafi öðlast þekkingu á ólíkum vistkerfum og hvernig veðurfar og lífbreytileiki getur breyst við það eitt að planta trjám.
- að börnin beri virðingu fyrir náttúrunni og geti á lýðræðislegan hátt tekið afstöðu með umhverfisvernd sem nær ekki aðeins til nútímans heldur einnig til framtíðar.
- að börnin hafi upplifað ánægju af því að dvelja úti í náttúrunni sem geti orðið til þess að auka áhuga þeirra á náttúru og útivist í framtíðinni.
- að tengsl milli nemenda skólastiga hafi eflst sem geti leitt til þess að það verði auðveldara fyrir nemendur leikskólans að flytjast yfir í grunnskólann. En það má leiða líkur að því að þegar börn hefja skólagöngu sé gott að þekkja börnin og starfsfólkið sem fyrir er í skólanum
Texti fengin af heiðasíðu Leikskólans Krakkaborg

